Opnunartímar:
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-16
Sími: 534 2727


Framleiðendur




Karrimor Bakpokar Íslensku Alparnir bjóða uppá mikið úrval af bakpokum. Við erum með bakpoka fyrir öll ferðalög, hvort sem um er að ræða dagspoka á Esjuna eða stóran poka á Strandirnar.




Bergans flöskur
Óbrjótanlegar Bergans vatnsflöskur 0,5 til 1 lítra. Frábærar flöskur fyrir vökva sem þola nánast hvað sem er. Henta vel í göngur og útilegu.



Íslensku Alparnir
Faxafeni 8
105 Reykjavík
Sími: 534 - 2727
e-mail: alparniralparnir.is

Atomic Skíði

Atomic Race skíði
Þetta eru frábær keppnisskíði fyrir þá sem vilja fá það mesta út úr skíðunum sínum. Mætti hreinlega kalla þau formúlu-1 skíðin. Enda hafa þau 11 ár af heimsbikarsigrum á bakinu til að sanna sig. Þetta eru hin fullkomnu skíði fyrr þá sem gera miklar kröfur til skíðanna sinna.

Atomic GS12
Ný heimsbikarskíði með Powerbridge tækni fyrir þá sem gera miklar kröfur fyrir eina erfiðustu greinina í skíðaíþróttinni, stórsvig. Henta vel fyrir þá sem vilja taka stóra sveiga, frábærir eiginleikar í öllum fasa beygjunnar, nákvæm beygjustýring, beinn flutningur á afli og fullkomið grip, meira að segja á miklum hraða.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
183, 186, 191 19m/180 111-66-93


Atomic SL12

Dýnamísk, snögg og full af orku, þetta eru nýju svigskíðin frá Atomic fyrir alla skíðamenn sem elska þrönga sveiga og eru í góðu formi. Gott grip og góður flutningur á afli til að ná sem beinustu línu niður fjallið. Nýjungar eins og Powerbridge tryggja bestu keppniseiginleikana fyrir snöggar beygjur og þessi sekúndubrot sem tryggja þér fyrsta sætið.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
165 12m/160 119-65-101

Atomic Race 8 jr
Þaulreynd og prófuð skíði sem henta börnum einstaklega vel. Það er auðvelt að beygja á þessum, þau eru mjög stöðug og kantgripið á þeim er framúrskarandi.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
120, 130, 140, 150 13m/160 107-65-88

Atomic Race 7 jr
Þaulreynd og prófuð skíði sem henta börnum einstaklega vel. Það er auðvelt að beygja á þessum, þau eru mjög stöðug og kantgripið á þeim er framúrskarandi.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
70, 80, 90, 100, 110    


Atomic Supercross
Þessi skíði líta kannski út fyrir að vera svolítið skrítin en þau hafa frábæra eiginleika sem nýtast jafn vel innan brautar sem utan. Þetta snýst bara um að hina fullkomnu nautn að renna sér um alla brekkuna án þess að hafa áhyggjur af neinu.

Atomic SX9
Skíði fyrir góða skíðamenn og gamla keppendur sem vilja upplifa það besta, þæginleg, létt og auðvelt að skíða á. Hörku góð skíði, sem henta í krefjandi færi og brattar brekkur, þetta eru skíðin sem mettnaðafulli skíðakappinn velur.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
166, 170, 174 15m/170 112-65-97


Atomic Izor

Hvað með það þó þú sjáir ekki nano-tækni? Ein ferð og hvaða skíðamaður sem er finnur muninn. Izor skíðin eru byggð til þess að koma þér á hærra plan. Ofurlétt nano-bætt kolefnið, í sambland við meðalbreið skíði er það sem gerir gæfumuninn. Jafnvel þó nano-tækni sé ekkert smáræði, hver hefði þá haldið að eitthvað svona smátt myndi gera svona mikið?

Atomic Izor 9:7
Létt og góð skíði með góðum Carving eiginleikum. Eru gerð með nano-tækni fyrir kröfuharða skíðamenn. Auðveld í notkun við allar aðstæður. Skíði fyrir þá sem vilja upplifa vera frjáls í rauðum og bláum brekkum, og einnig getað tekist á við brattari brekkur, þægileg og létt og auðvelt að skíða á, góð skíði, fyrir hjónin sem hafa gaman að eiga góðan dag í fjöllunum.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
159, 168, 177 16m/168 116-72-102

Atomic Izor 7:5
Mjög fjölbreytt skíði með frábærum beygju-eiginleikum. Skíðin henta einstaklega vel innanbrautar. Gripið er frábært á þeim og þau samsvara sér vel með nano-tækninni. Að skíða Carving með þessum skíðum er ekkert mál. Skíði fyrir þá sem vilja upplifa vera frjáls í rauðum og bláum brekkum, þægileg, létt og auðvelt að skíða á, frábær skíði fyrir alla sem hafa gaman af, að eiga góðan dag í fjöllunum.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
159, 168 16m/168 116-72-102

Atomic Izor 3:1
Frábær skíði sem eru létt og frekar mjúk. Það er auðvelt að stýra þessum skíðum í beygjum og þau fyrirgefa mikið. Þar af leiðandi henta Izor 3:1 afskaplega vel fyrir byrjendur.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
150, 159, 168 15m/159 112-68-96

 

Atomic Balanz
Hérna er nano-tæknin nýtt til síns ýtrasta. Balanz skíðin henta einstaklega vel fyrir konur enda eru þau hönnuð fyirr þær. Þetta er frábær skíðalína með einstakalega góða eiginleika fyirr allar konur.

Atomic Balanz 9:7
Ný skíðalína frá Atomic sem sameinar allt það besta í einu skíði. Það er upphækkun í hælin og henta skíðin því einstaklega vel fyrir konur. Þetta færir þyngdarpunktinn framar sem auðveldar konum að stjórna skíðunum.

Tæknilegar upplýsingar
Lengdir Radíus Breiddir
150, 169 15m/160 107-65-88

© 2007, 2008 Allur réttur áskilinn Íslensku Alparnir