Opnunartímar:
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-16
Sími: 534 2727


Framleiðendur




Göngustafir
Rannsóknir við háskólann í Salzburg, Austurríki hafa sýnt að á 8 tíma fjallgöngu geta göngustafir létta álagið á hnéin um 250 tonn eða sem nemur þyngd 62 afrískra fíla.




Göngutjald
Aztec Esquina eru frábær 2 manna göngutjöld sem ætlað er til notkunar nánast allt árið. Það er mjög auðvelt að tjalda því og það er með 5000 mm vatnsheldni sem er mjög mikið fyrir göngutjald. Engu að síður þá vegur það aðeins 3,2 kg.

Lesa meira



Íslensku Alparnir
Faxafeni 8
105 Reykjavík
Sími: 534 - 2727
e-mail: alparniralparnir.is

Dúnpokar

Umhirða á svefnpokum
Í fróðleikshorninu má finna upplýsingar um það hvernig er best að hugsa um svefnpokann sinn.

Dúnpokar - almennar upplýsingar
Stærsti kostur dúnpoka er sá að þeir eru yfirleitt léttari heldur en fíber pokar og þeir pakkast mun betur heldur en fíberpokar. Því henta þeir mjög vel til gönguferða. Ekki geyma dúnpoka eða dúnjakka í þröngum geymslupokum. Langtímageymsla í þröngum poka getur skemmt dúninn og dregið úr einangrunargildi hans. Það má aldrei setja rakann svefnpoka í geymslupoka það getur valdið myglu. Best er að geyma pokann í hreinu loftræstu umhverfi eða í vel rúmum netapoka svo svefnpokinn haldi betur einangrunargildi sínu.

Dúnpokar - Warmth
Íslensku alparnir bjóða uppá nokkrar tegundir dúnpoka frá Warmth. Þeir eru með mismunandi einangrunareiginleikum og henta því við allar íslenskar aðstæður. Hægt er að velja um mismunandi fyllingu og býður sá hlýjasti uppá þægindamörk á -16°C og hámarksmörk á -24°C. Einnig erum við með poka sem gerðir eru fyrir hlýrra umhverfi en það bæði dúnpoka sem og fíberpoka.

Veldu þér réttan svefnpoka!
Fimm spurningar sem þú þarft að svara áður en þú velur þér svefnpoka:
  1. Hvað er lægsta hitastigið sem þú átt eftir að sofa við?
  2. Hérna borgar sig að vera svartsýnn. Taktu poka sem er hefur 5-10° meira kuldaþol en það sem þú átt von á að lenda í.
  3. Hvor pokinn er hlýrri?
  4. Hitatölur eru ágætur mælikvarði, en rýmd er betri. Berðu saman poka hlið við hlið; ef hitatölurnar eru eins, þá skaltu veðja á feita pokann. Ef þú ert í virkilega köldum aðstæðum, veldu þá poka sem er með 10° meira kuldaþol.
  5. Ertu að brölta eða sefurðu eins og steinn?
  6. Svefnpokar koma í ýmsum útfærslum. Veldu poka sem sameinar góða einangrun (minna rými) og rúmgóðan poka. Fyrir þá sem brölta mikið á næturnar, þá geta nokkrir sentimetrar í viðbót við axlirnar gert gæfumuninn. Að sama skapi ef þú þarft minna olnbogarými þá getur þú fengið þér þrengri poka og sparað þyngd.
  7. Dúnn eða gervi?
  8. Fáðu þér dún ef vigt og rýmd skipta höfuðmáli. Galli: Ef pokinn blotnar, þá ert líklegt að þú munir skjálfa úr kulda. Veldu gerviefni ef verð skiptir meira máli eða þú átt eftir að vera í miklu rigningarveðri.
  9. Hversu marga svefnpoka langar þig að eiga?
  10. Fyrir marga göngumenn þá getur munurinn á mill næturhitastigs verið allt að 30 gráðum á milli árstíða. Þú sparar þyngd að sumri og hindrar að þér verði kalt að vetri ef þú kaupir fleiri en einn svefnpoka.

 


© 2007, 2008 Allur réttur áskilinn Íslensku Alparnir