Íslensku Alparnir
Faxafeni 8
105 Reykjavík
Sími: 534 - 2727
e-mail: alparnir alparnir.is
|
|
|
|
|
|
|
Umhirða á svefnpokum
Í fróðleikshorninu má finna upplýsingar um það hvernig er best að hugsa um svefnpokann sinn.
Fíberpokar - almennar upplýsingar
Gerviefni eru þyngri, en ódýrari heldur en dúnninn. Hversu mikið ódýrari fer eftir því hversu þungur pokinn er, þennslu gerviefnanna, mýkt og þjöppunareiginleikum. Þung gerviefni eru ódýr og endingagóð en að sama skapi þau sem eru stífust. Sem leiðir til þungs poka með marga loftvasa sem hleypa hitanum í gegnum sig. Létt gerviefni hafa ýmsa eiginleika sem svipar til dúns, t.d. halda betur einangrunareiginleikum sínum þegar raki kemst í þá heldur en dúnsvefnpokar, að auki þorna gerviefnin fyrr. Þannig að fyrir notkun í krefjandi umhverfi er svefnpoki úr gerviefni sennilega betri kostur. Svefnpokar með fíberþráðum njóta einnig góðs af langtíma geymslu í í góðu rými eins og dúnpokar.
|
Veldu þér réttan svefnpoka
Fimm spurningar sem þú þarft að svara áður en þú velur þér svefnpoka:
- Hvað er lægsta hitastigið sem þú átt eftir að sofa við?
Hérna borgar sig að vera svartsýnn. Taktu poka sem er hefur 5-10° meira kuldaþol en það sem þú átt von á að lenda í.
- Hvor pokinn er hlýrri?
Hitatölur eru ágætur mælikvarði, en rýmd er betri. Berðu saman poka hlið við hlið; ef hitatölurnar eru eins, þá skaltu veðja á feita pokann. Ef þú ert í virkilega köldum aðstæðum, veldu þá poka sem er með 10° meira kuldaþol.
- Ertu að brölta eða sefurðu eins og steinn?
Svefnpokar koma í ýmsum útfærslum. Veldu poka sem sameinar góða einangrun (minna rými) og rúmgóðan poka. Fyrir þá sem brölta mikið á næturnar, þá geta nokkrir sentimetrar í viðbót við axlirnar gert gæfumuninn. Að sama skapi ef þú þarft minna olnbogarými þá getur þú fengið þér þrengri poka og sparað þyngd.
- Dúnn eða gervi?
Fáðu þér dún ef vigt og rýmd skipta höfuðmáli. Galli: Ef pokinn blotnar, þá ert líklegt að þú munir skjálfa úr kulda. Veldu gerviefni ef verð skiptir meira máli eða þú átt eftir að vera í miklu rigningarveðri.
- Hversu marga svefnpoka langar þig að eiga?
Fyrir marga göngumenn þá getur munurinn á mill næturhitastigs verið allt að 30 gráðum á milli árstíða. Þú sparar þyngd að sumri og hindrar að þér verði kalt að vetri ef þú kaupir fleiri en einn svefnpoka.
|
|
|
|
|