Fjallareglurnar 9:
1. Farðu ekki í langferð án þjálfunar.
2. Láttu vita hvenær og hvaðan haldið er af stað og hvenær áætlað er að koma til baka.
3. Taktu mið af veðri og veðurhorfum.
4. Hlustaðu á reynt fjallafólk.
5. Vertu viðbúinn slæmu veðri og óhöppum, jafnvel í stuttum ferðum.
6. Hafðu alltaf kort og áttavita meðferðis og jafnvel hæðarmæli.
7. Ferðastu ekki einn þíns liðs.
8. Snúðu við í tæka tíð. Það er engin skömm að fara til baka.
9. Sparaðu kraftana og leitaðu skjóls í tæka tíð.
Lagskipting Fatnaðar
Lagskipting fatnaðar er leyndarmálið til að halda sér heitum og njóta útivistarinnar. Lagskiptur fatnaður gerir þér kleyft að búa til eigið lag umhverfis líkama þinn sem hægt er að aðlaga að raka, vindi, hita og mikilli hreyfingu.
Innsta lagið
Það lag sem er næst líkamanum skiptir miklum máli af því að það er í beinni snertingu við húðina. Nærfatnaður á að flytja rakann frá húðinni í loftið sem er í millilaginu eða efsta lagið þar sem það getur gufað upp. Þar sem vatn er með mjög góða hitaleiðni, þá dregur blautur nærfatnaður hitann frá líkamanum. Jafnvel þó það sé ekki mjög kalt úti getur stöðugt hitatap með blautum fatnaði valdið því að líkaminn missi það mikinn hita frá sér að það geti valdið því að kjarnhiti líkamans fellur.
Að okkar mati er besti undirfatnaðurinn Icebreaker fatnaður úr 100% hreinni Merinó ull. Þetta er léttur og góður undirfatnaður sem hentar vel við íslenskar aðstæður. Fatnaðurinn dregur ekki í sig raka og þornar mjög fljótt. Allir saumar eru flatir þannig að þeir mynda ekki núning við húðina undir bakpoka eða sigstól. Nærfatnaðurinn á að sitja þétt við húðina án þess þó að draga úr hreyfigetu. Við eigum til Icebreaker undirfatnað í tvennum þykktum sem ættu að henta flestum.
Mið lagið
Miðlagið veitir einangrun og losar áfram rakann frá nærfatnaðinum á yfirborðið til uppgufunar. Til þess að draga úr hitatapi, þá þarf þetta lag að geta haldið í hitann sem líkaminn myndar. Ull eða gerviefni eins og t.d. fleece efni henta vel til þess verkefnis, þar sem útlit háranna eða þráðanna myndar smá loftrými sem heldur mólekúlum að heitu lofti. Auka fítusar eins og t.d. rennilásar undir höndum, rennilásar framan á flíkum og slíkt auðveldar útöndun. Það er eins með þetta lag eins og undirlagið, það á að sitja þétt en ekki hindra hreyfingar á nokkurn hátt.
Ysta lagið
Ysta lagið verndar þig frá vindi og vatni, og það ætti að leyfa lofti að leika um mið lagið og hleypa út raka. Í þuru veðri getur veri að það dugi að notast við s.k. Softshell eða mjúka skel. Ef hættan er á að veður geti verið válynd við útiveruna þá er betra að notast við ysta lag sem hefur vatnsvörn og öndunareiginleika, t.d. með Gore-Tex, Sympatex eða álíka efni.
Umhirða skófatnaðar
Gönguskór endast betur og veita betri vatsnvörn ef vel er hugsað um þá. Að hugsa um gönguskóna þýðir að það þarf að þrífa þá, næra leðrið og vatnsverja þá. Það er mikilvægt að nota rétt efni fyrir gönguskóna til þess að hámarka endingu þeirra. Lestu því vandlega allar leiðbeiningar sem koma með skónum og þeim efnum sem ætluð eru til að verja skóna.
Þrif
Þegar skór eru þrifnir er best að fjarlægja reimar og aðra lausa hluti af skónum. Alla fasta mold og slíkt er best að skrapa af og leysa upp önnur laus óhreinindi, gott er að nota til þess tusku og volgt vatn. Að lokum er gott að bursta með mjúkum bursta öll önnur óhreinindi. Skolið síðan skóna með köldu vatni til að ná burt öllum smá óhreinindum sem sátu eftir. Loftþurkið síðan skóna við stofuhita, þurrkið þá alls ekki ofaná ofni eða við opinn eld. Þvoið innri hliðina á skónum með tusku og volgu sápuvatni til að ná burt saltkristöllum sem hafa safnast þar fyrir og leyfið skónum að þorna. Gott er að setja áburð eða þunnt lag af feiti á leðrið innan í skónum.
Viðhald
Leður er lifandi efni og ef það er ekki borið á það reglulega þá þornar það upp, stífnar og springur. Regluleg umhirða um skóna hindrar að það gerist og heldur leðrinu mjúku og ef notuð er vatnsvörn, vatnsvörðu. Þegar búið er að nota nýja skó nokkrum sinnum er vel við hæfi að bera aftur á skóna. Gættu sérlega vel að staðnum þar sem skórnir pressast saman yfir tánum þegar sólinn svignar við göngu. Þessum stað er mjög hætt við að springa ef ekki er borið vel á hann.
Vatnsverjandi meðferð
Bæði silicon og vax geta verið vatnsleysanleg. Þetta þýðir að þau vinna best þegar þau eru borin á raka skó. Vökvinn í smáum holrýmum virka sem lím á efnin og draga þau í leðrið þegar skórnir þorna. Vatnsleysanleg efni eru vinsæl á gróf leðurefni, rússkin og skó með Gore-Tex vatnsvörn.
Vax
Vax er vinsælasta og mest notaða vatnsvörning á skó í dag, þrátt fyrir að leður geti dökknað aðeins við notkun á vaxi, sérstaklega burstuðu leðri. Vax virkar best þegar það er borið þunnt og jafnt á flötinn með fingrunum. Sum vaxefnin loka skónum svo vel að það hindrar Gore-Tex filmuna í að sinna hlutverki sínu. Ef þú gengur mikið í blautu umhveri getur þetta verið þess virði, þ.e.a.s. að draga úr öndun fyrir meir vatnsvörn.
Silicon
Það er best að setja silicon á skó þegar þeir eru nýjir og hafa ekki verið notaðir. Silicon hvorki dekkir né breytir litnum á skónum. Silicon leyfir betri öndun á skónum en vaxið, en það nærir ekki leðrið eins vel. Vax varnir með siliconi veita frábæra vatnsvörn og endingu en eiga það til að breyta litarhafti skónna.
Að pakka í bakpoka
Áður en þú pakkar í bakpokann settu allt sem þú ætlar að taka með þér á gólfið fyrir framan þig. Skildu eftir það sem þú telur þig ekki þurfa og gaktu úr skugga um að þú hafir ekki gleymt neinu nauðsynjum.
Ímyndaðu þér að pokinn séu þrjú svæði
Svæði 1 : Settu létta hluti hérna á botninn í bakpokanu, t.d. svefnpokann þinn.
Svæði 2 : Settu þunga hluti hérna, t.d. vatn, mat, klifurbúnað, tjald og fleira sem næst bakinu. Notaðu flíspeysu eða slíkt til að verja hornhvassa hluti.
Svæði 3 : Settu miðlungsþunga hluti eða stærri hlut efst í pokan eða fjærst bakinu. Markmiðið er að forðast að hafa bakpoka sem er með alla þyngdina efst og yst, sem veldur óþarfa álagi á bakið. Einnig áttu að forðast að hafa þunga hluti neðst sem veldur því að þér finnst þú vera dreginn niðurávið. Með því að pakka þungum hlutum sem næst miðju þyngdaraflsins (miðju bakinu) heldur þér í betra jafnvægi og auðveldar burðinn á hlutunum.
Heilræði:
Dreifðu þyngdinni jafnt á milli hægri og vinstri hluta
Settu hluti sem þú notar oft á staði þar sem auðvelt er að nálgast þá, t.d. í vasa utaná bakpokanum.
Þegar gengið er mikið á jafnsléttu, hækkaðu þá þungu hlutina í bakpokanum til að auðvelda þér gönguna
Fyrir erfitt landslag er betra að pakka þungum hlutum neðar til að bæta jafnvægið
Pokar leyfa þér að pakka í flýti búnaðinum þínum og auðveldar þér að finna hlutina. Ekki fylla pokana alveg, þar sem það getur verið auðveldara að troða þeim í lítil rými.
Notaðu potta sem harða poka til að vernda viðkvæman búnað.
Pakkaðu matnum fyrir ofan eldsneytisflöskuna. Sérstaklega þegar þú ert að notast við hreinsað bensín.
Nýttu stillingarnar á bakpokanum til að halda búnaðinum sem næst þér þegar þú ert á göngu.
Að halda Svefnpokum hreinum
Dragðu úr hættu á því að óhreinka pokann með því að sofa í undirfatnaði eða notast við innri poka í svefnpokann. Ef þú ert með dúnpoka og lætur húðina komast í snertingu við svefnpokann þá eykur þú hættuna á því að skemma dúninn með líkamsfitum.
Geymsla
Ekki geyma dúnpoka eða dúnjakka í þröngum geymslupokum. Langtímageymsla í þröngum poka getur skemmt dúninn og dregið úr einangrunargildi hans, einnig má aldrei setja rakann svefnpoka í geymslupoka það getur valdið myglu. Best er að geyma pokann í hreinu loftræstu umhverfi eða í vel rúmum netapoka svo svefnpokinn haldi betur einangrunargildi sínu.
Þrif
Ef svo óheppilega vill til að svefnpokinn verði skítugur eða það er langt síðann hann var þveginn síðast er gott að þvo hann í þvottavél (samkvæmt leiðbeiningum á pokanum) og nota til þess sérstök þvottaefni t.d. frá Holmenkol til að þrífa svefnpoka.
Ýmis góð ráð
Enga myglu hér!
Hefur þú lent í því að tjaldið þitt lykti mjög illa þegar þú tekur það úr geymslupokanum? Þetta er lyktin sem kemur þegar raki er að skemma vatnsvörnina í tjaldinu. Það þarf ekki nema nokkra dropa af vatni til að mygla geti myndast. Besta leiðin til að forðast það er að þurka tjaldið strax, með því að hengja himininn upp ef hægt er og láta sólina þurrka botninn á tjaldinu. Þegar heim er komið er gott að hengja tjaldið upp innandyra til að þurrka það vel. Þegar það er orðið þurt er best að geyma það í bómullarpoka eða netapoka þannig að það lofti um það.
Lífgaðu uppá skítugan bakpoka
Eftir erfiða ferð eða skítuga ferð er best að skola af pokanum með garðslöngu eða setja hann í volgt bað. Notið síðan tannbursta til að ná skítnum úr rennilásum og öðrum erfiðum svæðum. Forðist að nota sápu á bakpokann nema ef það er olíublettur á pokanum t.d. ólívuolíu eða sólarvörn. Í slíkum tilfellum er best að nota milda lyktarlausa sápu, eins og t.d. sápuflögur. Skolið síðan pokann og þurrkið vel
Súluvandræði
Þú getur forðast vandræði með súlur í tjöldum með því að tjalda varfærnislega. Ef svo illa vill til að súla brotnar þá skiptir miklu að gera sem fyrst við súluna því hún getur auðveldlega skemmt tjaldið eða rifið það. Einnig er hætta á að brotin súla geti slitið teygjuna sem er innaní mörgum súlum. Til að laga skemmdina byrjið á því að setja álhólkinn sem fylgir tjaldinu yfir skemmdina og notið síðan límband til að festa hólkinn báðu megin. Hólkurinn ætti að fylgja öllum nýjum tjöldum í dag, einnig er hægt að fá hann hjá okkur. Þegar heim er komið er best að hafa samband við söluaðila og panta nýja súlu í tjaldið.
Hreinsaðu vatnspokann!
Margir eiga vatnspoka með slöngu í dag. Nauðsynlegt er að þrífa hann reglulega svo ekki komi mygla í hann. Besta ráðið er að nota klórlausn til að þrífa hann. Settu hálfa teskeið af klór í pokann og slatta af volgu vatni. Hristu pokan vel og losaðu tappan svo klórvatnið geti farið yfir gengjurnar í tappanum þegar þú hellir úr. Kreistu bitstykkið svo klórvatn fari í gegnum slönguna. Til þess að losna síðan við klórbragðið er pokinn fylltur af matarsóda blöndu (1 teskeið af matarsóda í líter af vatni) og gert eins og áður. Að lokum skolið síðan pokann einu sinni með köldu vatni, opnið hann síðan og látið hann þorna vel.
Soðið vatn til þvotta!
Notaðu vatn og hita til að hreinsa pottana. Þegar búið er að tæma pottinn af kássunni sem á að borða og allir eru að fá sér bita. Þá er kjörið að setja vatn í pottinn, lokið á og kveikja undir honum. Þegar það er farið að sjóða, slökktu þá undir honum og leyfðu heitu vatninu að vinna sína vinnu. Málið er að vatn er öflugt leysiefni og saman með hita og gufu þá getur það náð jafnvel verstu blettum. Þú getur svo nýtt heitavatnið til að þvo diska og bolla eftir matinn.