Opnunartímar:
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-16
Sími: 534 2727


Framleiðendur




Göngustafir
Rannsóknir við háskólann í Salzburg, Austurríki hafa sýnt að á 8 tíma fjallgöngu geta göngustafir létta álagið á hnéin um 250 tonn eða sem nemur þyngd 62 afrískra fíla.




Bergans flöskur
Óbrjótanlegar Bergans vatnsflöskur 0,5 til 1 lítra. Frábærar flöskur fyrir vökva sem þola nánast hvað sem er. Henta vel í göngur og útilegu.



Íslensku Alparnir
Faxafeni 8
105 Reykjavík
Sími: 534 - 2727
e-mail: alparniralparnir.is


Miðlag
Miðlagið ætti að falla örlítið lausara að líkamanum en innsta lagið en á þó ekki að poka. Það þarf að vera í snertingu við innsta lagið til þess að virka almennilega. Efnin í miðlaginu eru hönnuð til þess að fanga líkamshitann í smáum loftrýmum, þar af leiðandi getur verið að þau séu svolítið fyrirferðameiri. Miðlagið er líka hannað til þess að draga rakann frá líkamanum og flytja hann yfir í ysta lagið. Það er til ýmis fatnaður í miðlag í dag, en vinsælast er þó að nota fleece eða Merino. Sumir framleiðendur eru farnir að blanda saman gerviefnum og ull til að fá fram betri eiginleika. Þú gætir þurft að vera í fleiri en einni flík sem millilag. Stærsti kosturinn við að vera klæddur í lagskiptan fatnað er að hægt er að auka við eða fækka fötum eins og þörf krefur. Þegar þú kaupir miðlag er gott að skoða úrvalið mjög vel, viltu t.d. stutta rennilása eða rennilása alla leið að framan

Íslensku Alparnir bjóða uppá mikið úrval af fatnaði sem hentar einkar vel sem miðlag. Við erum með fleece treyjur og buxur, Merino treyjur í nokkrum þykktum og svo eigum við vindtefjandi fljótþornandi göngubuxur. Göngubuxurnar eru til í ýmsum sniðum og litum. Þær hafa reynst afar vel á Íslandi í lengri sem skemri gönguferðum.


© 2007, 2008 Allur réttur áskilinn Íslensku Alparnir