Icebreaker Í apríl kom nýr fatnaður frá Icebreaker, nýjar línur og litir fyrir sumarið. Það er engum blöðum um það að fletta að einn besti merino fatnaðurinn á markaðnum í dag er frá Icebreaker. Skoðið úrvalið hjá okkur.
Göngutjald Aztec Esquina eru frábær 2 manna göngutjöld sem ætlað er til notkunar nánast allt árið. Það er mjög auðvelt að tjalda því og það er með 5000 mm vatnsheldni sem er mjög mikið fyrir göngutjald. Engu að síður þá vegur það aðeins 3,2 kg.
Umhirða á skóm
Í fróðleikshorninu má finna upplýsingar um það hvernig er best að hugsa um gönguskóna sína.
Alparnir hafa nú aukið verulega við úrvalið af gönguskóm og má á síðunni sjá brot af þeim skóm sem eru í boði hjá okkur. Lítið yfir það sem við höfum hér á síðunni en best er þó alltaf að koma í verslun okkar og prófa skóna.
Gönguskór
Softshell Mid gönguskór
Softshell Mid skórinn er léttur og þægilegur skór sem hentar vel fyrir fjölbreytta útivist. Þessi skór veitir aðeins meiri stuðning og vörn en lágir gönguskór. Skórnir eru vatnsheldir með frábærri eVent filmu sem heldur þér þurrum í hvaða veðri sem er. Skórnir eru með FrameFlex Quest kjarna sem er sérstaklega hannaður til að vinna með Vibram Quest sólanum sem var sérhannaður fyrir Karrimor.
Stærðir: 41-48.
Meridian low
Meridian Low skórinn er léttur og lágur skór sem hentar vel fyrir ýmsa útivist þar sem ekki er krafist mikils stuðnings við ökkla. Skórnir eru vatnsheldir með eVent filmu sem heldur þér þurrum í hvaða veðri sem er. Skórnir eru með FrameFlex Quest kjarna sem er sérstaklega hannaður til að vinna með Vibram Quest sólanum sem var sérhannaður fyrir Karrimor.
Stærðir: 37-40
Whirlwind weathertite
Whirlwind weathertite skórinn er léttur og lágur skór sem hentar vel fyrir ýmsa útivist þar sem ekki er krafist mikils stuðnings við ökkla. Skórnir eru vatnsheldir með eVent filmu sem heldur þér þurrum í hvaða veðri sem er. Skórnir eru með FrameFlex 3D Tenacity kjarna sem gerir skóna einstaklega létta, eykur fjöðrun og veitir hámarks stuðning.
Stærðir: 37-40
Yuma gönguskór
Þægilegur og góður skór sem er einn sá léttasti á markaðnum í dag. Millistífur skór úr burstuðu leðri með Vibram sóla og gúmmíkanti. Skórinn er með SympaTex öndunarfilmu.
Þyngd: 600 gr.
Stærðir: 36-47.
Hnjúkur herraskór
Þægilegur og góður millistífur skór úr burstuðu leðri. Vibram sóli með gúmmíkanti og SympaTex vatnsvörn. Er okkar vinsælasti gönguskór.
Þyngd: 800 gr. (stærð 43)
Stærðir: 42-48.
Esja dömuskór
Þægilegur og góðir gönguskór sem eru sérframleiddir fyrir konur. Millistífir skór úr burstuðu leðri, með Vibramsóla og gúmmíkanti. Skórnir eru með Sympatex öndunarfilmu.
Þyngd: 700 gr. (stærð 39)
Stærðir: 36-43
Aðrir skór
Auk þeirra tegunda sem upp eru talin hér, má nefna að Alparnir hafa til sölu ýmsa skó frá Scarpa, má þar meðal annars nefna tegundir eins og Hekla, Ladahk, Vento og ZG40