Opnunartímar:
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-16
Sími: 534 2727


Framleiðendur




Icebreaker
Í apríl kom nýr fatnaður frá Icebreaker, nýjar línur og litir fyrir sumarið. Það er engum blöðum um það að fletta að einn besti merino fatnaðurinn á markaðnum í dag er frá Icebreaker. Skoðið úrvalið hjá okkur.

Lesa Meira




Göngutjald
Aztec Esquina eru frábær 2 manna göngutjöld sem ætlað er til notkunar nánast allt árið. Það er mjög auðvelt að tjalda því og það er með 5000 mm vatnsheldni sem er mjög mikið fyrir göngutjald. Engu að síður þá vegur það aðeins 3,2 kg.

Lesa meira



Íslensku Alparnir
Faxafeni 8
105 Reykjavík
Sími: 534 - 2727
e-mail: alparniralparnir.is


Göngustafir
Við bjóðum uppá margar tegundir göngustafa sem henta við allar aðstæður. Við eigum göngustafi í stafagöngur og lengjanlega stafi fyrir fjallgöngur. Göngustafirnir sem við erum með eru frá Ítalska fyrirtækinu Italbastoni og við erum einnig með stafi frá Komperdell. Stafgöngustafirnir eru fáanlegir bæði stillanlegir og í fastri stærð.

Að velja sér göngustafi
Þegar þú gengur með göngustafi þá ertu að dreifa þyng og jafnvægi á fjóra punkta í stað tveggja. Þeir sem nota göngustafi við fjallgöngur hafa flestir strax tekið eftir kostinum að þeir hlífa hnjánum, sérstaklega á löngum göngum niðrímóti. Eftirtalda hluti er gott að hafa í huga þegar þú velur þér göngustafi:

  • Stillanlegir stafir
  • Fyrir fjallgöngur er gott að vera með stillanlega stafi. Þeir hafa nokkra lykilkosti. Í fyrst lagi margir geta notað sömu stafina óháð hæð einfaldlega með því stilla þá í rétta lengd. Ef þú ert að fara niður langa brekku þá er hægt að lengja í stöfunum og þar með létta á álaginu á hnéin. Að sama skapi er hægt að stytta þá þegar þú ert að fara upp brekkur og fengið meiri kraft í hverju skrefi upp brekkuna.
  • Grip
  • Gripið á stöfunum þarf að vera gott og gjarnan formað að hendinni. Handföng sem eru úr hörðu plasti verða létt blaut af svita og geta því verið óþægileg í hendi. Prófið endilega nokkrar gerðir til að sjá hvað hentar ykkur. Stafir sem eru með fóðringu aðeins niður á hálsinn geta verið mjög hentugir fyrir stuttar brekkur þar sem hægt er að grípa neðar á stafina án þess að þurfa að stilla þá uppá nýtt.
  • Demparar
  • Sumir göngustafir eru með innbyggða dempara. Demparar á skíðastöfum hjálpa til við að draga úr högginu þegar stafurinn fer í jörðina við göngu. Þetta dregur úr álagi á hendur og axlir við göngu, sem er oft mikið við göngu niður langar brekkur. Ef þú velur göngustafi með dempara vertu þá viss um að göngustafirnir hafi möguleikann á að taka demparann úr sambandi. Kosturinn við það er að þegar þú ferð upp brekkur þá er betra að hafa demparann ekki virkann því hann vinnur gegn þér og eyðir óþarfa orku í hvert skipti sem þú setur hann niður.

Í upphafi skyldi endinn skoðaður
Endinn á göngustöfum er framleiddur í þremur útgáfum: Oddur, hamraður eða gúmmí. Hver þessara enda virkar vel við ákveðnar aðstæður en verr við aðrar. Endinn sem virkar fyrir flestar aðstæður er sá hamraði. Hann lítur út eins og það sé búið að meitla úr honum og mynda marga enda á honum. Þessi endi býður uppá grip í nánast hvaða landslagi sem er (frá jökli til gangstíga), hann er endingargóður og öruggari en endi með einum oddi. Gúmmiendar reynast best á hörðu yfirborði eins og gangstígum, á meðan oddhvassir stafir reynast best á ís. Best er að hafa endann úr karbít efni en ekki áli. Flestir göngustafir í dag eru með karbít efni og gúmmitappa yfir sem hægt er að taka af.


© 2007, 2008 Allur réttur áskilinn Íslensku Alparnir