Opnunartímar:
- Virka daga: 10-18
- Laugardaga: 11-16
Sími: 534 2727


Framleiðendur




Icebreaker
Í apríl kom nýr fatnaður frá Icebreaker, nýjar línur og litir fyrir sumarið. Það er engum blöðum um það að fletta að einn besti merino fatnaðurinn á markaðnum í dag er frá Icebreaker. Skoðið úrvalið hjá okkur.

Lesa Meira




Göngutjald
Aztec Esquina eru frábær 2 manna göngutjöld sem ætlað er til notkunar nánast allt árið. Það er mjög auðvelt að tjalda því og það er með 5000 mm vatnsheldni sem er mjög mikið fyrir göngutjald. Engu að síður þá vegur það aðeins 3,2 kg.

Lesa meira



Íslensku Alparnir
Faxafeni 8
105 Reykjavík
Sími: 534 - 2727
e-mail: alparniralparnir.is


Undirfatnaður - Innsta lag
Mikilvægt er að innsta lagið dragi raka frá líkamanum og að það sé þægilegt að vera í því. Langerma Merino treyjur og síðar Merino buxur er hugsanlega með besta undirfatnaðinum sem þú getur fengið. Flíkin á að liggja þétt að líkamanum og halda þér hlýjum og þurrum. Hægt er að fá undirfatnað úr gerviefnum eða Merino. Íslensku Alparnir bjóða uppá góðan undirfatnað frá Icebreaker sem er til í 3 þykktum og einnig gerviefni frá Nord Blanc. Allir ættu að geta fundið innsta lag við hæfi hjá okkur.

Chakra

Chakra zip

Icebreaker Merino fatnaður
Icebreaker Merino fatnaðurinn er einstakleg hlýr og góður undirfatnaður. Hann hefur reynst ævintýramönnum og konum um allan heim einstaklega vel. Hvort sem um er að ræða -20°C í Kardang La pass, eða 50°C í Taklamakan eyðimörkinni þá hefur þessi frábæri undirfatnaður staðið fyrir sínu. Við erum sannfærð um það að þetta sé einn sá besti undirfatnaður sem völ er á í dag. Kíktu við hjá okkur og sjáðu úrvalið af þessum frábæra fatnaði og ekki gleyma að það eru til peysur og bolir frá Icebreaker líka, en ekki bara síðbrók og treyjur.

Icebreaker - þykktir, eitthvað fyrir alla
Icebreaker Merino fatnaðurinn er til í miklu úrvali hjá okkur. Allt frá því að vera næfurþunnur sem kallast Bodyfit 140, þar sem talan vísar til þess hveru mikið efni (í grömmum) sé á hverjum fermeter (hentar t.d. vel sem stuttermabolur í ræktina eða á góðum sumardeg). Næstur á eftir honum er Bodyfit 190/200 sem hentar mjög vel sem undirfatnaður við göngur að sumri til. Bodyfit 200 er til bæði sem langerma og stutterma bolur og leggings. Langerma bolurinn er til með og án renniláss í fjölda lita auk hins klassíska svarta litar. Loks er til Bodyfit 260 sem hentar einstaklega vel þegar kalt er í veðri, fjallgöngur að vetri til eða þegar verið er á skíðum. Bodyfit 260 er einungis til sem langerma treyjur og leggings. Það eru bæði til treyjur með og án rennilás í mörgum litum auk svarta litarins. Loks eigum við nokkrar peysur í Bodyfit 320 línunni sem eru frábærar flíkur í nokkurm litum fyrir dömur og herra. Einnig erum við með nokkra pólóboli frá Icebreaker. Einn stærsti kosturinn við Icebreaker er að fatnaðurinn dregur ekki í sig lykt, krumpast lítið og hnökrar sama og ekkert. Þetta eru því framúrskarandi flíkur fyrir alla sem vilja hágæða undirfatnað fyrir krefjandi aðstæður.

Nokkrir vitnisburðirRodney Keenan - Konica Minolta Sailing Team

"Að sigla fyrir fullum seglum í þrjá daga er eins og að standa fyrir framan brunaslöngu í þrjá daga. Eins og alltaf þá var Icebreaker fatnaðurinn frábær. Hann hélt allri áhöfninni hlýrri þegar á reyndi"
- Rodney Keenan - Konica Minolta Sailing Team

 

 

Rodney Keenan - Konica Minolta Sailing Team

"Það er erfitt að klæða sig rétt fyrir fjallahjólreiðar vegna þess að hraðinn og vindkælingin er síbreytileg. Icebreaker höndla bæði mjög vel og er nauðsynlegur hjólreiðabúnaður - og það lyktar ekki "
- Marcus Roy - Mountain biker


© 2007, 2008 Allur réttur áskilinn Íslensku Alparnir