
Ysta lag
Ysta lagið getur verið softshell jakki eða Gore-Tex (Sympatex, eVent) jakki. Í dag er mest notað í útivst svokallaðar skeljar, sem eru vind og vatnsheldar og vernda þig vel. Á sama tíma hleypa þessar flíkur vel frá sér raka. Helsti munur á miðlagi og ysta lagi er að ysta lagið er vind og vatnshelt á meðan að miðlagið hleypir í gegnum sig vindi og vatni. Ef þú ætlar þér að fá góða flík fyrir íslenskar aðstæður þá mælum við með 2,5 eða 3ja laga jökkum og buxum. Margar vel hannaðar flíkur eru með rennilásum undir höndum til að auka útöndum við krefjandi aðstæður. Þá er ótalið einangrað ysta lag, sem er t.d. skíðajakkar og skíðabuxur.
Það er ágætis regla að muna, að ef það myndast ekki perlur á ysta laginu í rigningu þá þarftu að þvo jakkann eða buxurnar. Athugaðu vel þvottaleiðbeiningarnar, sumar flíkur þarf að handþvo, sumar þarf að hengja til þerris aðrar má setja í þurrkara. Stundum þarf að endurnýja vatnsfráhrindandi filmuna. Til þess að þvo og vatnsverja flíkina mælum við með Holmenkol vörunum okkar, bæði þvottaefnum sem og vatnsverjandi efnum fyrir allar gerðir fatnaðar.
Dúnúlpur - Mountain Equipment og Warmth
Dúnúlpurnar sem við erum með eru annarsvegar frá Mountain Equipment, sem er framleiðandi með áratuga reynslu af framleiðslu hágæða fatnaðar. Hinsvegar erum við með dúnúlpur frá Warmth. Báðar tegundirnar eru mjög góðar henta ákaflega vel við íslenskar aðstæður.
Skeljar
Skeljar er jakkar eða buxur sem hafa ekki neina einangrun, heldur eru bara vatns og vindheldar flíkur. Við erum með skeljar frá Mountain Equipment, Karrimor, Icepeak og Nord Blanc. Jakkarnir eru til sem tveggja, tveggja og hálfs og þriggja laga. Það er alveg örugglega til jakki eða buxur hjá okkur sem henta þér.